Um mig: Við erum 16 hressir krakkar frá aldrinum 17-19 ára úr Garðabænum. Við vinnum í Skapandi Sumarhópum í Garðabæ í sumar og hér getiði fylgst með verkefnum okkar og starfi í sumar!
Fimmtudaginn 22. júlí var haldin lokahátíð
Skapandi Sumarhópa í Garðabæ 2010 á Garðatorgi. Hátíðin samanstóð af
tónlistaratriðum, myndlistar- og ljósmyndasýningu sem sýndi afrakstur hópanna
eftir vinnu sumarsins. Þar voru til sýnis textílverkefni sem þær Katla Mist
Brynjarsdóttir og Kolfinna Kristínardóttir hafa unnið að í allt sumar.
Verkefnið fólst í því að þær endurgerðu ýmsar klassískar flíkur eftir þekktustu
hönnuði heims en úr endurnýtanlegum efnum. Einnig höfðu þær til sýnis verk sem
þær unnu fyrir Jónsmessugleðina í Garðabæ. Annar listamaður á sýningunni var
hann Kristján Júlíusson en hann hefur verið að gera graffití listaverk í sumar.
Uppi voru þónokkur verkefni eftir hann sem unnin voru sérstaklega fyrir þessa
sýningu en einnig sýndi hann verk sem hann vann fyrir framan gangandi
vegfarendur á Jónsmessugleðinni. Rebekka Jenný Reynisdóttir var einnig með verk
á sýningunni en hún hefur verið að vinna með ljóð í sumar. Hún hafði til sýnis
fjögur frumsamin ljóð sem hún var búin að mála á striga og myndskreyta.
Tónlistarhóparnir fóru svo upp á svið og spiluðu fyrir gesti sem komu til að
skoða afrakstur sumarsins. Til viðbótar við þessi verk voru uppi ljósmyndir af
atburðum Skapandi Sumarhópa, sem haldnir voru fyrr um sumarið, til að mynda
sundlaugartónleikar, leikskólaheimsóknir og harmónikkuleikur á
Vífilstaðaspítala. Heppnaðist sýningin vel og þökkum við gestum okkar innilega fyrir komuna! Myndir frá sýningunni má finna í Myndadálknum hér á síðunni.
Dagurinn í dag byrjaði á mætingu niðrí skóla og fínstillingu á hljóðfærum okkar.
Stóra tækifæri Súpu var handan við hornið í dag.. Íþróttadagur Vinnuskólans var í dag og Súpa var bókuð á giggið. Sólin skein og pylsur voru í boði og allt leit vel út fyrir Súpu.
EN þegar við löbbuðum inn í tónmenntastofuna til þess að ná í magnara og annað slíkt sem þarf í tónleikahald, þá vantaði slatta.
Þar sem lögin okkar þarfnast allra þeirra hljóðfæra sem við æfum þau með.. þá þurfti Súpa að hætta við tónleikana.
Vinnumenn og konur Vinnuskólans hafa eflaust verið niðurbrotin en pylsurnar hafa vonandi verið fín huggun. Einnig var Pepsi.
í staðinn hélt Súpa fund varðandi stuttmyndina og fundað var til hádegis.
Eftir hádegispásuna var mætt aftur niðrí skóla og ljóðalistin tók við. Af nokkrum ljóðum höfum við ákveðið að birta hér aðeins eitt sem menn mega rýna í.
Sæludagur
Skundar út, bleikur mér Undirförull flár í sté Út við örkum hefndir þó Lífsins klukka sem hér eitt sinn stóð
Næst komandi fimmtudag, þann 22. júlí, munu Skapandi Sumarhópar bjóða gestum og gangandi að fagna starfslokum með okkur og sjá afrakstur sumarsins á lokasýningu sem haldin verður á Garðatorgi.
Þar verður hægt að sjá Graffití listaverk eftir Kristján Júlíusson, fatalínu frá Kötlu Mist Brynjarsdóttur og Kolfinnu Kristínardóttur sem þær hafa unnið að í sumar. Einnig verða til sýnis frumsamin ljóð eftir Rebekku Jenný Reynisdóttur. Ljósmyndir frá starfinu munu einnig vera til sýnis.
Tónlistahóparnir munu svo sjá um að skemmta gestum með ljúfum tónum. Hljómsveitin Súpa mun flytja nokkur frumsamin lög en meðlimir hennar eru Daníel Jón Jónsson, Benedikt Jónsson, Haukur Jóhannesson og Hlynur Hjartarson. Einnig munu Eyrún Engilbertsdóttir og Jón Rúnar Ingimarsson flytja frumsamin tónverk. Hjörvar Hans Bragason, Jóhann Auðunn Þorsteinsson og Þorgrímur Þorsteinsson munu svo slást með í hópinn og munu þau fimm spila saman nokkur lög.
Herlegaheitin hefjast svo klukkan 17 Vonumst eftir að sjá sem flesta
Pælingar í tempói fyrir lag sem við spiluðum svo á Jónsmessugleði Garðabæjar. Þetta var mjög snemma í ferli lagsins, sennilega ein af fyrstu spilunum á því.
Dagurinn í dag gekk vel. Við stilltum upp kamerunni, ýttum á 'rec' og byrjuðum að æfa. Í byrjun dagsins myndaðist strax nýtt lag og myndbrotið hér fyrir neðan sýnir útkomuna(loka skiptið sem við spiluðum það fyrir helgi). Það er enn á byrjunarstigi og kaflarnir eru ennþá óákveðnir. Það gæti farið svo að lagið verði allt annað á lokastigi.
Tökum líka fram að magnararnir snúa allir þversum kruss þannig hljóðið er allt útum allt í þessari klippu. Hlökkum til að taka það upp almennilega og sjá og sýna útkomuna
Á morgun munu tónlistarkrakkarnir úr Skapandi Sumarhópunum spila í IKEA í Kauptúni! Hefjast herlegheitin á slaginu 13:30 og er því tilvalið fyrir Garðbæinga að gera sér ferð í IKEA og versla, kaupa sér ís og njóta tónlistarinnar með okkur.
Annars gengur allt sinn vanagang hér í Sumarhópunum og nóg er að gera og allir krakkarnir eru að vinna hörðum höndum að sínum verkefnum.
Sumarkveðja, Krakkarnir í Skapandi Sumarhópum Garðabæjar.
Fimmtudagurinn 8. júlí ...var afkastamikill dagur í sögu Súpu!
Þetta byrjaði allt saman vel og fyrir hádegi fór í að klippa video af æfingunum okkar. Það gekk frekar brösulega þar sem það tekur sjö ár að setja nokkrar mínútur inn á tölvu úr cameru. Eftir þá misheppnuðu tilraun var lunch og svo beint í æfingar! Renndum mjög oft yfir lögin og þau eru byrjuð að fá góða mynd á sig. Í hvert sinn sem við spilum eitthvað af okkar lögum kemur ný hugmynd og lagið verður betra.
Allt þetta tókum við upp og vegna tæknilegra örðugleika kemur myndbrotið mikla í fyrramálið.
NÝTT LAG! er byrjað að mótast. Gengur hægt en gengur þó
Þetta verður stutt og laggott blogg að þessu sinni en myndbrotið mun vonandi segja allt sem segja þarf.